Miðvikudagurinn 26.02.2002

Fórum á STERObar á þriðjudagskvöldið og þar sem ég þurfti að taka rútuna klukkan 06:30 þá fórum við bara ekkert að sofa, gláptum á simpsons drukkum kaffi og þraukuðum það. Guðbjörg var síðan svo elskuleg að keyra mig út í rútuna… Einhver mófó greip aftasta sætarununa þannig að ég gat ekkert sofið, fór í ferju á milli dk og de og fékk mér morgunverðarhlaðborð, og tróð mig auðvitað út. Kom í berlín um tvö leytið og var vel tekið á móti af kharis og thilo, þá var ég reyndar ekkert búin að sofa síðan þriðjudagsmorguninn, en svefn er fyrir aumingja þannig að ég fékk mér bara bjór og fylgdist með viðbrögðum þjóðverjana (or tyrkjana) þegar tyrkir töpuðu fyrir brazilíumönnum. Thillo fékk sér einn þann fáránlegasta stóra hamborgara sem ég hef séð og kláraði svona 1/3 af honum. Fyrst að þetta var hálfgert tyrkjahverfi þá drifum við okkur í burtu ef að þeir skyldu fara í einhverja óeirða stemningu eftir tapið. Kharis og ég hengum bara og chilluðum í hvítvínsstemningu um kvöldið hlustandi á og búa til smá músík.