Fimmtudagur FRH

Verslaði lítið niðrí bæ og kíkti í klippingu líka og var bara orðin svaka spaði. Kíkti á levy og co aftur og var ástandið þar ekkert afskaplega gott á fólkinu, allir þreyttir og súrir, en loforðið um fyllerí og gott djamm hressti fljótlega alla við. Kíktum eftir langt og strembið sötr á öli á Woodstock, sem var örþrifaráð vegna þess að klukkan var orðin margt. Woodstock er furðulegur staður, Inngangseyrir er 30 krónur dk, plús 100 fyrir herra og 50 fyrir dömur plús 10 fyrir fatagæslu og þegar inn er komið þá er bjór og “kampavín” frítt á barnum, amk næsta klukkutímann, því við mættum of seint. Eins og sönnum íslendingum sæmdi þá ætluðum við ekki að láta þetta úr greipum okkar ganga, fyrst við þurftum að borga þetta heiftarlega verð þarna inn. Fórum á barinn og tókum öll fimm glös hver og röðuðum á allt borðið. Danirnir urðu furðulostnir á þessum tilburðum í okkur, og sumir þeirra uppgvötuðu rónann í sjálfum sér og ákváðu að slást í hópinn í að láta eins og fífl. Tónlistin og stemningin var svona blanda af astró, glaumbar og skólaballi með diskótekinu dísa, en hápunktur kvöldsins var grease syrpan og silence.