morgun

Klukkan átta, skondið að vakna svona snemma, það er einhvern vegin allt annað atmosphere í gangi núna. Alger þögn fyrir utan viftuhljóðið í tölvunni minni. Át smá Trix í mjólk og las rss frétta-fyrirsagnirnar mínar

Meðal annars um “óhróður og hótanir á netinu”. Stundum held ég að Morgunblaðið segi hvað sem er fyrir shock value-ið. Reyndar ekki í jafn miklu mæli en DV en gildir einu. Auðvitað hrella krakkar hvorn annan og hafa alltaf gert, en fjölmiðlar virðast stundum vera með þá áráttun að reyna að sanna húsmæðurnar í vesturbænum um að satan stýri internetinu og því beri að loka.