draumurinn er búinn

já, draumurinn sem kallaðist skynvilla er búin…. eða amk að ganga í gegnum stórfelldar breytingar…. ég fór upp á villu í vikunni og tók saman plötusafnið mitt, sem var hægara sagt en gert…

margar breiðskífurnar voru búnar að dreifa sér um allt safnið, margar plöturnar voru í röngum hulstrum, margar plötur voru í bunkanum sem ég átti ekki, margar plöturnar voru án hulsturs og mjög skítugar……

dótið tók 3-4 tíma, en eftir svita og tár, þá er plötusafnið mitt næstum því orðið heilt aftur….