off to berlin yes
Jæja, þá er maður í niðurpakkningunum. Ég tek IE á morgun á leifstöð klukkan 15:00 skipti í London Stansted í Air Berlin um átta og lendi rétt fyrir 23 “að staðartíma”.. vona að lappabatteríið endist mér í báðar vélarnar. Er að rigga batteríið fyrir videovélina og svona….. vonandi nenni ég að vera duglegur að taka video… ef ég kemst í almennilega nettengingu þá kannski pósta ég eitt stykki videoi….. ef ég nenni. Er að reyna að fara með sem minnstan farangur… kaupi mér bara drasl sem þvælist bara fyrir í farangrinum eins og föt og fleira :)
Ég talaði við Kharis í dag og hann sagði mér að koma með hlý föt…. WTF!! ég fer þarna út m.a. í þeim tilgangi að komast í betra veður, en ég er greinilega alltaf svona óheppinn í veðrarmálum þegar til þýskalands ég fer…. seinasta sumar þá forðaðist góða veðrið mig þegar ég fór til berlínar [það fór til köben á meðan ] og þegar ég kom aftur til köben þá fór það til berlínar…. jæja ég bít í það súra bara með bros á vör
p.s. tékkiði á Chris Clark plötunni “empty the bones of you” sem er nýkomin út af warp….. stórskemmtileg tónlist fyrir íslenskar vetraraðstæður.