Segull og útvarpsbylgjur....

Jæja, þá er ég búin að fara í mri (magnetic resonance imaging) eða segulómun eins og það er kallað. 45 mínútur af því að liggja mjög kyrr og hlusta á lætin í græjunni…. klank klank klank (á mörgum mismunandi hröðum)…. athyglisvert. Ég get svarið fyrir það að ég fann á tímabili segulinn eða útvarpsbylgjurnar eða hvað þetta nú var, á ferðinni í heilanum…. fann þrýstinginn færast niður eftir höfðinu, og eftir sat tímabundinn hausverkur…

Ég minntist á þetta við hjúkkuna/mri tæknimanninn… hún gaf ekki mikið út fyrir það, en þegar ég sagði við hana að ég ætti það til að fá hausverk vegna gsm notkunnar, þá sagði hún að gsm símar væru skaðlegir og maður ætti að nota amk heyrnartól þegar maður væri að tala í gsm síma… “þetta er alveg vitað mál….”

Skrítið samt að það sé ekkert mikið talað um þetta… hver veit, kannski verða heilu kynslóðirnar allt í einu minnislausar eftir um 20 ár.