getting the shit together

Kíkti í eurogrill partý í gær hjá Bjarna Guð, og verð að mæla með að grilla kjúklingabringur… það er óvitlaust. Ég borðaði tvöfaldan skammt, sem var þó lítið á við suma sem að torguðu 600 gr nautasteikum OG drógu aðra að landi… vá

Annars er það að frétta frá vígstöðunum að þetta er allt að koma hérna á nýja heimilinu… snúruskráningin er búin, og hún var ekkert smá leiðinleg, en á eftir að spara mér hausverk og skápapláss. Ótrúlegt hvað maður áttar sig á því hvað maður á mikið af dóti þegar maður tekur það saman. Hvað á maður t.d. að gera við 56 kbps pcmcia módem ?

Yfir í annað… Sjálfstæðismenn hafa greinilega mikið bein í nefinu fyrst þeir eru tilbúnir til að sitja þegjandi á meðan formaðurinn verður sér gjörsamlega til skammar með yfirlýsingum og samsæriskenningum sem bera vott um …..tja.. að eitthvað sé ekki í lagi. Bein í nefinu segi ég….. já, en ef til vill þá væri meira bein í nefinu, ef þeir hefðu kjark í sér til að setjast niður og eiga gott spjall við manninn. En þetta er erfið skák sem þeir eru að spila, því ef að menn setja sig upp á móti formanninum þá gætu þeir verið að fremja pólitískt sjálfsmorð innan flokksins….