froogle
Ég er ekkert smá stoltur. Ég hef verið mikill google supporter lengi vel, og ég rakst á svolítið þegar ég var að leita að netverslunum með sonyericsson s700 á froogle.google.com sem er svona netverslunar vöru-leitarvélin. En viti menn, af einhverjum orsökum þá setti froogle mig í þriðja sæti. Það hefur líklegast verið út af því að á einni category síðunni minni var bloggið mitt um símann og annars staðar á síðunni var $14.95, þannig að froogle hefur misskilið þetta. Ég er kannski aðeins minna stoltur núna…..