hvað er eiginlega í gangi?
Stundum kemur það fyrir að í þessu annars ágæta landi þá hálf skammast maður sín fyrir samborgara sína. Ekki að ég ætli mér að verða eitthvað of dramatískur, en mér finnst ástandið svolítið kalla á dramatík. Án þess að taka sértæka afstöðu í málinu, hvernig þjóðfélagi búum við í sem að tekur menntun af börnum í svona langan tíma?
Það er kannski ekki skrítið að við skorum lágt í raungreinum meðal þróaðra ríkja, eins og kom fram í einhverri alþjóðakönnun. Kannski er menntunarstigið bara lágt, þar sem lítil virðing er, að manni virðist, borin fyrir menntun.