uppsláttur fjölmiðla

Ég hef alltaf sett Fréttablaðið í annan standard/flokk en t.d. DV, en fyrir fyrirsögn fréttablaðsins í dag kom mér á óvart. Hún er “Með 105 kíló af fíkniefnum”. Ég hugsaði strax þegar ég sá þetta “hver gerðist svona bíræfinn að reyna að smygla svona miklu inn í landið”. Þegar betur var að gáð var þetta bara uppsláttur eingöngu ætlaður til grípa lesendur, þar sem að talan 105 er samtala úr að því virðist nokkrum óskyldum málum.

Ég ákvað því að búa til nokkrar fyrirsagnir með sömu aðferðum:

“Sömdu yfir 3000 lög á einum mánuði”

“Yfir 100 manns drepin í gær”

eða t.d.

“30.000 eintökum af fréttablaðinu hent í ruslið á miðvikudeginum”